Jæja góðir landsmenn þá er komið að því að ég átti smá tíma aflögu til að blogga en það er komið ár síðan ég hóf þá iðju og það eru margir að segja að ég sé ekki að standa mig í þessu en því er ég ekki sammála því að ég hef bara ekki jafn mikin frítíma og aðrir J En þetta ár byrjaði með látum því 1. jan eignuðumst við skötuhjúin litla stúlku sem heitir Særún Lilja og var það einstök upplifun að vera viðstaddur fæðinguna. Og að vera foreldri er það besta sem við vitum um tilfinningin er einstök og mæli ég með að þið sem lesið þetta og eigið ekki börn að fá ykkur eitt, það tekkur ekki langan tíma að búa það til J Þannig að nú á ég tvær stelpur það er að segja Vallý og Særúnu Lilju og fæ ég að hugsa um þær og elska allt mitt líf og það eru forréttindi að fá það TAKK elskurnar mínar fyrir að vera svona æðislegar.
Svo var það 17. mars sem við litla fjölskyldan fluttum inn í nýja húsið okkar sem við vorum búinn að bíða svo lengi eftir, en það var þess virði að bíða því hér líður okkur mjög vel og ætlum að rækta okkar garð. Svo keyptum við okkur líka nýjan bíll því að vagninn hennar Særúnar komst ekki í gamla bílinn. Svo gerðust önnur stór tíðindi um mitt sumar en þá fengum við okkur vespu og vá það var eins og allur heimurinn tæki við sér og fengi sér vespu því að þetta er komið út um allt við fórum til Tenerife sem er fínn staður og mæli ég með honnum fyrir alla nema rauðhærða stráka sem eiga ekki gott með að vera í sólbaði í 30 stiga hita á hverjum degi ekki slæmt það bara sveittur í 10 tíma á dag J nei nei þetta var geggjað gaman en þar voru allir á vespum og sögðu innfæddir eyjaskeggjar að þetta væri bara nýkomið þarna hjá þeim og væri einhvað trend frá íslandi svo maður spyr sig bara hvor að maður hafi verið upphafsmaðurinn af þessu öllu saman.
Á þessu ári erum við búinn að ferðast allveg svakalega mikið, ég er búinn að fara til Þýskalands Englands og Tenerife og Vallý og Særún er búnar að fara til Svíþjóðar og Tenerife svo ekki sé minnst á innanlands ferðalögin okkar en við erum búin að leggja af baki yfir 5000 km á þessum ferðalögum en það er alltaf jafn gaman að koma til foreldra minna og systkina sem búa út á landi ( líka til þín Halldóra ) hún býr í rek verst að það er ófært þangað 9 mánuði á ári svo að við hittumst ekki nægilega oft. Svo á Vallý ömmu á Vopnafirði sem við fórum til tvisvar í sumar en það er sama sagan þar bara hægt að fara þangað yfir há sumarið sökum veðurofsa.
Svo er það boltinn maður, en á vor dögum fór ég í stjórn víðis í garði og vorum við þrír ungir og ferskir strákar sem komum inn í stjórnina og sögðum að fólk yrði strax vart við breytingar og vitir menn, á okkar fyrsta tímabili fór liðið upp um deild og spilaði ég einn leik sem fór 18-0 fyrir okkur og er það félagsmet og skoraði ég 2 mörk svo það má með sanni segja að allt sem maður kemur nálagt verður að gulli J
Svo ætla ég að segja ykkur frá því að ég er með markmið um að verða helköttaður fyrir páska massaður í rusl og tanaður í drasl jjjjjááááá fínt já sæll já fínt já sæll já fínt já sæll.
Kveð að sinni og guð einn veit hvenær mér gefst aftur 5-10 mín til að blogga..